Hoppa yfir valmynd
14.12.2023
Áhrif verkfalla flugumferðarstjóra

Áhrif verkfalla flugumferðarstjóra

Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) hefur boðað til verkfalla flugumferðarstjóra í flugturninum á Keflavíkurflugvelli mánudaginn 18. desember kl. 04:00-10:00 og miðvikudaginn 20. desember kl. 04:00-10:00. Ekkert flug verður þá um völlinn á þeim tíma en undanþágur verða veittar fyrir leitar- og björgunarflug, sjúkraflug og flug á vegum Landhelgisgæslunnar.

Farþegar sem eiga flug til eða frá Keflavíkurflugvelli á þessu tímabili eru hvattir til að fylgjast með upplýsingum frá sínum flugfélögum eða kanna flugáætlun á vef Keflavíkurflugvallar.

Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) og Samtök Atvinnulífsins (SA) fyrir hönd Isavia ANS, Isavia ohf., og Isavia Innanlandsflugvalla, standa nú í kjaraviðræðum og hefur þeim verið vísað til embættis Ríkissáttasemjara.