Hoppa yfir valmynd
7.6.2012
Akureyrarflug Icelandair hafið

Akureyrarflug Icelandair hafið

Guðrún Sigurðardóttir og Sven Adolph, farþegar í fyrsta fluginu frá Akureyri til Keflavíkur, klipptu á borðann. Mynd: Kristján Kristjánsson

Icelandair flaug fyrsta flug sitt frá Akureyri til Keflavíkur í dag, 7. júní, og gerir Norðanmönnum kleift að komast nánast beina leið til helstu áfangastaða í Evrópu og Bandaríkjunum. Flogið verður fjórum sinnum í viku til 27. ágúst, á mánudögum, fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum og tvisvar í viku eftir það til 30. september á fimmtudögum og sunnudögum.
 
Gert er ráð fyrir að um 2500 farþegar fljúgi þessa leið í sumar og að stærstur hluti þeirra, um 80%, verði erlendir ferðamenn sem taldir eru nær hrein viðbót við þá ferðamenn sem fyrir eru. Búist er að því að Danir, Bretar, Svíar og Þjóðverjar verði fjölmennastir í hópi þessara ferðamanna.

Brottför er frá Akureyrarflugvelli klukkan 14.30 og lending á Keflavíkurflugvelli klukkan 15.20. Fjölmargir áfangastaðir Icelandair liggja vel við þessu tengiflugi, til dæmis London, Kaupmannahöfn, Frankfurt, Amsterdam, Brussel, Stokkhólmur og Osló, auk tenginga við áfangastaði í Norður-Ameríku. Akureyrarflugið er bókanlegt sem hluti af flugi Icelandair til og frá Íslandi og mun félagið leigja Fokker 50 flugvél af systurfyrirtækinu, Flugfélagi Íslands.

Akureyri alþjóðlegur áfangastaður

„Það er spennandi að bæta Akureyri sem nýjum áfangastað inn í leiðakerfið okkar og tengiflugið sem fer í gegnum Keflavíkurflugvöll. Með þessum hætti erum við að opna nýja leið fyrir ferðamenn frá fjölmörgum öðrum borgum í leiðakerfi okkar til Akureyrar. Akureyri opnast í bókunarkerfum um allan heim sem áfangastaður Icelandair og við teljum okkur vera að færa Akureyri og perlur Norðurlands nær erlendum ferðamönnum og styrkja þannig undirstöður ferðaþjónustunnar á Norðurlandi,” segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri sagði þegar tilkynnt var um flugið síðasta haust að Akureyringar fögnuðu allri uppbyggingu í ferðaþjónustu á Íslandi og sérstaklega á Akureyri og Norðurlandi. "Það felast  mikilvæg tækifæri í því að Akureyri og Akureyrarflugvöllur tengist bókunar- og leiðarkerfi Icelandair. Akureyri og Akureyrarflugvöllur verður sýnilegri sem áfangastaður fyrir erlenda ferðamenn og í því eru tækifæri til frekari uppbyggingar og markaðssetningar svæðisins", sagði Eiríkur og lagði áherslu á að tenging Akureyrar- og Keflavíkurflugvallar dragi síður en svo úr mikilvægi Reykjavíkurflugvallar og staðsetningar hans í Vatnsmýrinni fyrir innanlands- og sjúkraflug.

Isavia óskar Icelandair og íbúum á Norðurlandi til hamingju með þessa nýju flugleið og aukna ferðamöguleika.