Hoppa yfir valmynd
17.12.2020
Álag á Keflavíkurflugvelli fyrir jól og um áramót

Álag á Keflavíkurflugvelli fyrir jól og um áramót

Isavia vekur athygli á því að álag getur skapast á Keflavíkurflugvelli í aðdraganda jóla og kringum áramót. Búist er við að fleiri ferðamann fari þar um en að jafnaði á síðustu vikum og mánuðum. Eru farþegar á leið úr landi tiltekna álagsdaga, þ.e. 18. og 19. desember og 2. og 3. janúar, hvattir til að mæta í innritun og öryggisleit 3 klukkustundum fyrir brottför. Það yrði gert til að koma til móts við þær aðstæður sem annars gætu skapast og þannig að afgreiðsla gangi eins vel og kostur er.

Farþegar eru einnig hvattir til að gæta vel að almennum sóttvörnum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og vera með grímur. Standa með handspritti má finna víða í flugstöðinni. Þar er einnig hæg að kaupa spritt og sóttvarnargrímur í fríhafnarverslun og hjá afgreiðslu Airport Parking.

Til að hraða ferðalagi og fækka snertingum sem mest bendum við farþegum á að skrá sig í flug á netinu áður en haldið er á flugvöllinn, sé þess kostur. Þá hvetjum við farþega einnig til að nota sjálfsafgreiðslustöðvar í brottfararsal þar sem það er hægt. Þar geta þeir innritað sig og farangurinn í flug.

Þá er komufarþegum bent á einhverja daga um hátíðar kann að myndist bið við skimunarbása Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á flugvellinum. Komi til þess verður farþegum hleypt í hópum úr flugvélum inn í flugstöðina til að stýra álagi.

Í þeim tilvikum þar sem farþegar eru að fara um ytri landamæri Schengen-svæðisins og flugvél er af þeirri stærð að hún kemst ekki að landgöngubrú við Schengen-landamærahliðin verður notast við rútur til að flytja farþega í og úr flugvél. Vegna sóttvarnareglna fer takmarkaður fjöldi fólks í hverja rútu og þær sótthreinsaðar milli ferða.

Fólk er beðið um að nota grímur á farþegasvæðum í flugstöðinni. Þetta á bæði við um farþega og starfsfólk.

Þjónusta verslunar- og veitingaaðila í flugstöðinni hefur verið skert síðustu vikur og mánuði vegna færri flugferða sökum Covid-19 faraldursins. Aukið verður við þjónustu þá daga sem mest verður um að vera í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um hátíðarnar.

Almannavarnir vilja beina því til fólks, sem á von á ættingjum og vinum til landsins fyrir og um hátíðarnar, að sækja ekki komufarþega á Keflavíkurflugvöll. Við komuna til landsins er fólk í sóttkví fram að seinni sýnatöku, nema það framvísi gildu vottorði um að það hafi fengið Covid-19 og náð bata. Sýnataka er gjaldfrjáls til og með 31. janúar 2021. Almannavarnir beina því til farþega við komuna til landsins að þeir taki rútu, leigubíl eða keyri sjálfir á áfangastað.