Hoppa yfir valmynd
13.1.2014
Álagning stöðubrotsgjalds við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli

Álagning stöðubrotsgjalds við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli

Bílastæðasjóður Sandgerðisbæjar hóf um áramótin álagningu stöðubrotsgjalda á ökumenn bifreiða sem leggja bílum sínum ólöglega við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Vegna mikillar fjölgunar farþega um flugstöðina síðustu ár hefur oft skapast slysahætta og tafir orðið vegna bifreiða sem lagt er ólöglega við flugstöðina. Þetta á sérstaklega við um stæði fyrir framan inngang flugstöðvarinnar sem eru einungis ætluð þeim sem eru að skila af sér farþegum án þess að bifreiðin sé yfirgefin. 
 
Bílastæðasjóður Sandgerðisbæjar fær sektargreiðslur
 
Bílastæðasjóður Sandgerðisbæjar annast innheimtu vegna stöðubrota en starfsmenn Isavia á Keflavíkurflugvelli annast stæðavörslu fyrir hönd sjóðsins og veita ökumönnum upplýsingar um bifreiðastæði sem nóg er af við flugstöðina. Álagning vegna stöðubrota er í samræmi við umferðarlög og sambærileg við stöðubrotsgjöld annarsstaðar á landinu. Hagnaður vegna stöðubrota rennur til framkvæmda við umferðarmannvirki við flugstöðina.
 
15 mínútna gjaldfrelsi í skammtímastæðum
 
Til þess að mæta þörfum ökumanna sem vilja skreppa inn í flugstöðina eru fyrstu 15 mínúturnar á skammtímastæðum komu- og brottfararmegin við flugstöðina gjaldfrjálsar. 
Þannig geta ökumenn nýtt stöðvunarsvæðið næst innganginum til þess að skila farþegum og farangri en skammtímastæðin án kostnaðar í 15 mínútur.  Ef þörf er á lengri dvöl inni í flugstöðinni kostar fyrsta klukkustundin á skammtímastæðum einungis 150 kr.
 
Isavia og Sandgerðisbær vona að ökumenn virði ofangreindar reglur um bifreiðastöður við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli og stuðli þannig að greiðum samgöngum og umferðaröryggi.  Tekið skal fram að reglur Bílastæðasjóðs gilda um allar bifreiðar, jafnt almennings, fyrirtækja og starfsmanna í flugstöðinni.
 
Nánari upplýsingar um Bílastæðasjóð Sandgerðisbæjar er að finna á vefnum www.bss.is.
Upplýsingar um bílastæðaþjónustu á Keflavíkurflugvelli eru á www.kefparking.is.