Hoppa yfir valmynd
29.9.2022
Árshlutauppgjör Isavia 30. júní 2022

Árshlutauppgjör Isavia 30. júní 2022

Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á fyrri helmingi ársins 2022 var jákvæð um 968 milljónir króna samanborið við neikvæða rekstrarafkomu upp á 3,2 milljarða króna fyrir sama tímabil á síðasta ári. Tekjur félagsins jukust um 9,5 milljarða króna milli tímabila og námu 15,8 milljörðum króna. Áhrif kórónuveirunnar gætti enn á afkomu félagsins á fyrri hluta árs 2022 þó svo að afkoman hefi verið töluvert betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Heildarafkoma tímabilsins var jákvæð um 501 milljón króna samanborið við neikvæða afkomu upp á um 3,5 milljarða króna fyrir sama tímabil í fyrra. Fjárfestingar félagsins námu um 6,5 milljörðum króna á fyrstu 6 mánuðum ársins og má rekja langstærsta hlutann, eða um 6,1 milljarð króna til framkvæmda á Keflavíkurflugvelli. 

Ef horft er til ársins 2019, fóru um 2,7 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll á fyrstu 6 mánuðum ársins samanborið við 2,3 milljónir farþega á sama tímabili á þessu ári. Í júlí og ágúst á þessu ári var fjöldi farþega orðinn meiri en í sömu mánuðum árið 2019 og því má segja að full endurheimt í fjölda farþega eftir kórónuveirufaraldurinn hafi náðst í júlí.

„Það eru mikilvæg og góð tíðindi að okkur hafi tekist að endurheimta þann fjölda farþega sem fór um Keflavíkurflugvöll fyrir kórónuveirufaraldurinn.“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Sú staða er langt frá því að vera sjálfsögð þegar við horfum til annarra flugvalla í Evrópu enda við einn af örfáum flugvöllum í álfunni sem höfum náð þessum árangri. Á sama tíma erum við í umsvifamestu framkvæmdum í sögu félagsins enda er það lykilatriði að við gerum Keflavíkurflugvöll í stakk búinn að styðja áfram við fjölgun flugtenginga og hafa þannig bein áhrif á lífsgæði og velsæld á Íslandi“.

Þrátt fyrir góðan árangur í endurheimt farþega er talsverð óvissa framundan. „Kostnaðarhækkanir síðustu ára og þá sér í lagi launakostnaður á Íslandi hafa gert okkur erfitt fyrir að ná þeirri arðsemi sem nauðsynleg er til að standa undir þeirri miklu uppbyggingu sem framundan er og eins og staðan er í dag þá er mikil óvissa framundan“, segir Sveinbjörn. „Við verðum áfram í mikilli samkeppni við erlenda flugvelli og við þurfum því að vera einstaklega snjöll til að mæta þessari óvissu. Flugtengingar eru einn af þeim lykilþáttum sem styðja við hagvöxt á Íslandi“.

Hálfsársuppgjör Isavia 2022 má lesa hér

Lykiltölur úr hálfsársuppgjöri Isavia 2022

  • Tekjur:813 milljónir króna
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA): 968 milljónir króna
  • Heildarafkoma eftir skatta: 501 milljón króna
  • Handbært fé:518 milljónir króna
  • Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum:457 milljónir króna
  • Eigið fé í lok tímabils:078 milljónir króna
  • Eiginfjárhlutfall: 42,2%