Hoppa yfir valmynd
19.4.2022
Bæta við beinu flugi til Mílanó

Bæta við beinu flugi til Mílanó

Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet hefur hafið sölu á flugferðum frá Keflavík til Mílanó á Ítalíu. Fyrsta flugið verður 28. maí og stefnir EasyJet  á að fljúga allt að þrjú flug í viku þegar mest lætur. Miðasala er nú þegar hafin.

„Ákvörðun EasyJet að bæta við nýjum áfangastað er einkar ánægjuleg og skýrt merki um það hve vinsæll ferðamannastaður Ísland er. Eftirspurnin er greinilega mikil og við fögnum því. Það verður spennandi fyrir okkur að taka á móti fyrsta flugi EasyJet frá Mílanó til Íslands í næsta mánuði,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðarþróunar hjá ISAVIA.

Líf er að færast í Keflavíkurflugvöll eftir Covid-19 faraldurinn og flugferðum um völlinn fjölgar stöðugt. Búast má við að 24 flugfélög muni fljúga um Keflavíkurflugvöll í sumar, tveimur fleiri en flugu um völlinn í fyrra.

„Lorenzo Lagorio, svæðisstjóri EasyJet á Ítalíu  segir: „Þökk sé þessari nýrri flugleið gefst viðskiptavinum EasyJet tækifæri til að uppgötva land í norður-Evrópu sem býður upp á einstaka náttúrufegurð. Landslagið er einstakt og kemur til með að heilla ferðamenn með eldfjöllum, jöklum og ólgandi hverum svo fátt eitt sé nefnt.“ Flugið kemur Íslendingum einnig að góðu enda Mílanó nú þegar orðin þekktur og hentugur áfangastaður fyrir íslenska ferðalanga.