Hoppa yfir valmynd
25.7.2023
Bakað á Keflavíkurflugvelli

Bakað á Keflavíkurflugvelli

Kaffihúsið Bakað hefur verið opnað á Keflavíkurflugvelli. Kaffihúsið, sem er það fyrra af tveimur sem til stendur að opna, er staðsett á innritunarsvæðinu á 1. hæð og því aðgengilegt öllum sem um flugvöllinn fara. Þar er í boði gómsætt bakkelsi, nýbakað brauð og pizzur, heilsusamlegir safar, salöt og rjúkandi heitt gæðakaffi frá Te & kaffi.

„Við ætlum að leggja áherslu á góða en einfalda rétti, ferskt brauðmeti og pizzur og hlökkum til að fá að baka ofan í gesti flugvallarins og senda þá sadda og sæla í háloftin,” segir Ágúst Einþórsson, bakari og hugmyndasmiður að vöruframboði Bakað. „Við leggjum áherslu á hraða og góða þjónustu fyrir gesti sem eru á ferðinni en bjóðum líka upp á virkilega fallega hannað svæði fyrir þau sem vilja setjast niður og eiga notalega stund.“

Það er HAF Studio sem sér um hönnun staðanna tveggja en hönnunarstofan hefur undanfarin ár komið að hönnun fjölmargra veitingastaða og mathalla.

„Það var skemmtileg áskorun að skapa notalegt umhverfi og upplifun fyrir gesti Keflavíkurflugvallar. Við völdum náttúrulega eik í bland við fallegt leður í sætisrýminu, dempaða lýsingu og einfalt og stílhreint útlit. Við vildum skapa umhverfi þar sem gestum líður vel og vilja sitja og njóta fyrir flug,“ segir Hafsteinn Júlíusson, eigandi HAF Studio.

Fyrra kaffihús Bakað hefur þegar verið opnað hjá innritunarrýminu en það síðara verður opnað síðar á árinu inni á verslunar- og veitingarými Keflavíkurflugvallar. 

„Eftir því sem farþegum fjölgar verða þarfirnar fjölbreyttari og því er Bakað alveg einstaklega góð viðbót í veitingaflóru flugvallarins. Við erum stöðugt að vinna að því að bæta upplifun farþega og þjónustu við þá og með Bakað fjölgar sannarlega valmöguleikum þeirra,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga á Keflavíkurflugvelli.