
Bein útsending - Morgunfundur Isavia um ferðasumarið framundan
Isavia boðar til opins fundar um ferðasumarið sem framundan er á Hilton Reykjavík Nordica og er hann sýndur í beinni útsendingu.
Á fundinum verður meðal annars farið yfir þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í til að taka sem allra best á móti ferðamönnum á Keflavíkurflugvelli, og kynnt uppbygging og áskoranir framkvæmdasjóðs ferðamanna.
Dagskrá
Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia ávarpar fundinn
Hvað er í kortunum?
- Farþegaþróun á Keflavíkurflugvelli
Grétar Már Garðarsson, verkefnastjóri á viðskiptasviði Keflavíkurflugvallar
Hvernig tökum við á móti ferðamönnum í sumar?
- Aukin þjónusta og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli
Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs
Fyrirspurnir úr sal
Það er ýmislegt að gerast
- Verkefni Ferðamálastofu og starfsemi Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða
Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
Við hvetjum alla sem hafa áhuga að skrá sig.