Hoppa yfir valmynd
3.12.2013
Besta fríhöfn í Evrópu 2013

Besta fríhöfn í Evrópu 2013

Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli, dótturfélag Isavia, hefur verið valin „Besta fríhöfn í Evrópu árið 2013“ af tímaritinu Business Destinations.
 
„The Business Destinations Travel Awards“, sem nú eru veitt í fimmta skipti, njóta virðingar í alþjóðlegri ferðaþjónustu. Sigurvegarar eru valdir með kosningu fjölmenns hóps áhrifamanna á sviði viðskiptaferðalaga. Yfirlýst markmið með veitingu verðlaunanna er að vekja athygli á þeim aðilum sem hafa náð athyglisverðum árangri í rekstri og eða nýsköpun og snjöllum lausnum á hinum ólíku sviðum ferðaþjónustunnar.
 
Verðlaunin eru flokkuð niður eftir heimsálfum og er framúrskarandi fyrirtækjum á ýmsum sviðum í hverri heimsálfu veitt viðurkenning. Eins og fyrr sagði var Fríhöfnin valin besta fríhafnarverslunin í Evrópu. Bestu fríhafnarverslanirnar í öðrum heimsálfum voru valdar Duty Free Americas, sem rekur fríhafnarverslanir á tíu flugstöðvum í Bandaríkjunum;  Dubai Duty Free var valin besta fríhöfn Miðausturlanda; Global Blue var valin besta fríhafnarþjónusta Suður-Ameríku;  China Duty Free Group hlaut viðurkenninguna í Asíu, SYD Airport & Duty Free í Sidney var valin besta fríhafnarverslunin í Eyjaálfu og IDFS í Marokkó var valin besta fríhafnarverslun Afríku.
 
Business Destinations segir að verðlaunin skilgreini þau markmið sem þeir sem stefna hátt á sviði ferðaþjónustu muni stefna að á næstunni. „Verðlaunahafar ársins eiga mikinn heiður skilinn fyrir að þær framfarir sem orðið hafa í atvinnugreininni allri á árinu sem er að líða,“ segir í yfirlýsingu frá Business Destinations í tilefni verðlaunaveitingarinnar í ár. Fjallað er um verðlaunin og verðlaunahafana í sérstökum viðauka með því hefti tímaritsins sem kom út þann 28. nóvember.
 
Um „The Business Destinations Travel Awards“: 
 
„The Business Destinations Travel Awards“ hafa verið veitt árlega undanfarin fimm ár og er ætlað að kynna þau fyrirtæki sem bjóða bestu fáanlegu vörur og þjónustu á ólíkum sviðum í alþjóðlegri  ferðaþjónustu. Sérstaða þessara verðlauna er fólgin í því að vinningshafar eru ekki valdir af fámennri dómnefnd heldur af stórum og fjölbreytilegum hópi sérfræðinga úr viðskiptalífinu. Þar er um að ræða stjórnendur viðskiptaferðalaga hjá 500 stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna (Fortune 500), ásamt  félagsmönnum í Samtökum stjórnenda viðskiptaferðalaga (ACTE) og fleiri lykilmönnum á sviði viðskiptaferðalaga. Hópurinn leggur mat á þau fyrirtæki, sem hljóta tilnefningu, samkvæmt ákveðnum ströngum mælikvörðum.
 
Þau fyrirtæki sem hljóta tilnefningu Business Destinations eru valin af dómnefnd skipuð stjórnendum frá tímaritinu og búa þeir að samtals níutíu ára fjölmiðlareynslu af umfjöllun um viðskiptaferðalög og styðjast við mikið magn upplýsinga og gagna sem safnað hefur verið af starfsmönnum dómnefndarinnar.
 
Um Business Destinations:
 
Í lesendahópi Business Destinations eru 96.388 eigendur fyrirtækja, forstjórar, stjórnendur og lykilstarfsfólk á sviði viðskiptaferðalaga og viðburðastjórnunar.
 
Business Destinations er gefið út ársfjórðungslega.
 
Business Destinations er í eigu fjölmiðlafyrirtækisins World News Media (WNM) sem hefur höfuðstöðvar í London, sérhæfir sig í þjónustu við viðskiptalífið og gefur út tímaritin World Finance, European Ceo og The New Economy, auk Business Destinations.

Frétt tekin af vef Fríhafnarinnar