Hoppa yfir valmynd
2.2.2018
Betra verð ef bílastæði er bókað á vefnum

Betra verð ef bílastæði er bókað á vefnum

Isavia hefur nú kynnt bókunarkerfi á vef Keflavíkurflugvallar þar sem farþegar geta bókað bílastæði á flugvellinum fram í tímann. Þannig geta þeir farþegar sem eru á leið í flug tryggt sér bílastæði á betra verði en þeir sem borga við hlið. Með þessu nýja bókunarkerfi minnka auk þess líkur á því að stæðin fyllist á álagstímum á flugvellinum.

Þann 1. mars verður einnig tekin upp ný gjaldskrá við bílastæðahlið og mun verð fara úr 1.250 krónum í 1.750 krónur á dag ef borgað er við hlið án þess að bóka bílastæði fyrirfram. Lægsta verð sem er í boði núna ef bókað er á vefnum er hins vegar 940 kr. á dag, en verðið fer eftir eftirspurn á hverjum tíma. Þannig mun stór hluti farþega sem bóka bílastæði fá betra meðalverð á dag en áður hefur boðist auk þess sem farþegar geta gengið að bílastæðinu vísu.

Kerfið er þekkt á flugvöllum víða um heiminn og hefur að sögn Hlyns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar, verið í þróun og innleiðingu hjá Isavia í meira en ár. Hafa kerfi sem þessi reynst afar vel á erlendum flugvöllum og þá sérstaklega þegar kemur að aðgangsstýringu á bílastæðin. „Þessi nýja leið mun vonandi verða til þess að Íslendingar nýti sér hana, bæði til að spara og sýna fyrirhyggju þegar kemur að ferðalaginu. Verðið sem viðkomandi fær fer þá eftir framboði og eftirspurn, það er hversu margir hafa bókað á undan á sama tíma. Því gefur augaleið að til að fá bílastæðið á sem bestu kjörum á álagstímum eins og um páska, í sumar og um jól er best að bóka með góðum fyrirvara.“

Í farþegaspá Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll, sem kynnt var í nóvember síðastliðnum, er spáð töluverðri fjölgun íslenskra farþega sem ferðast um flugvöllinn og er sú spá í takt við þróun síðastliðinna ára. Á miklum álagstímum hefur það atvikast að bílastæðin við flugvöllinn hafa fyllst, en í dag eru langtímastæði 2.400 talsins. Isavia er því með þessu framtaki að hvetja viðskiptavini til að bóka bílastæði um leið og flug er bókað sem geta þannig tryggt sér betra verð og öruggt bílastæði.