Hoppa yfir valmynd
14.10.2013
Björgunarsveitin Elliði fær Argo fjölfar

Björgunarsveitin Elliði fær Argo fjölfar

Atli Sveinn Svansson formaður björgunarsveitarinnar Elliða og Árni Birgisson samræmingarstjóri flugvalla og flugverndar hjá Isavia prófa tækið. Mynd: Iðunn Silja Svansdóttir.

Á laugardaginn afhenti Isavia björgunarsveitinni Elliða á Snæfellsnesi Argo fjölfar sem notað hefur verið á Akureyrarflugvelli í sex ár og Isavia hyggst nú endurnýja.

Tækið sem um ræðir er einstakt farartæki sem kemst auðveldlega um torfarin svæði, meðal annars leirur, votlendi og mýrlendi auk þess sem farið er hægt að nota á vatni og landi. Argoið kemur sér vel fyrir sveitina þar sem svæðið sem hún vinnur á er á köflum torfarið. Löngufjörur eru dæmi um fjölfarið ferðamannasvæði þar sem farið nýtist mjög vel.

Þegar Elliði heyrði af því að Isavia ætlaði að endurnýja fjölfarið, falaðist sveitin eftir því að kaupa það. Isavia tók vel í fyrirspurnina og gaf sveitinni farið í stað þess að hún keypti það. Verkefnið fellur vel að markmiðum styrktarsjóðs Isavia en eitt af helstu markmiðum sjóðsins er að efla hópslysaviðbúnað björgunarsveita landsins.