Hoppa yfir valmynd
1.11.2023
Brottfararrennan við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli lokuð einkabílum í eina viku

Brottfararrennan við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli lokuð einkabílum í eina viku

Til að tryggja enn betur umferðaröryggi og öryggi gangandi farþega verður í næstu viku ráðist í framkvæmdir fyrir utan brottfararsal flugstöðvarbyggingarinnar á Keflavíkurflugvelli. Bætt verður við gönguþverun og þarf því á meðan að takmarka aðgengi að brottfararrennunni svonefndu fyrir utan brottfararsalinn. Takmörkunin verður í gildi frá 6. nóvember næstkomandi til og með 12. nóvember.

Á tímabilinu verður aðeins hægt að aka rútum, strætisvögnum og leigubílum um brottfararrennuna sem er rauðmerkt á svæðinu á myndinni að neðan.

Farþegar sem koma á einkabílum er bent á að hægt er að fara inn á skammtímabílastæði P1 (grænmerkta leiðin á myndinni fyrir ofan) og leggja þar bifreið í allt að 15 mínútur þeim að kostnaðarlausu á hverjum sólarhring.

Við viljum þakka farþegum og rekstraraðilum fyrir sýndan skilning á meðan á framkvæmdum stendur. Þetta verkefni er eitt af mörgum sem við á Keflavíkurflugvelli höfum ráðist í á síðustu misserum til að bæta enn frekar þjónustuna á vellinum.