Hoppa yfir valmynd
7.12.2015

Búist við röskun á flugi vegna veðurs

Vegna aftakaveðurs sem Veðurstofa Íslands spáir í dag má búast við röskun á innanlands- og millilandaflugi í dag og í kvöld. Farþegar eru beðnir að fylgjast vel með tilkynningum frá flugfélögum og flugáætlunum á www.isavia.is, www.kefairport.is eða vef síns flugfélags.

Einnig er rétt að fylgjast vel með fréttum og tilkynningum um færð á vegum. Í veðri sem þessu er möguleiki á mjög slæmri færð um Reykjanesbrautina og jafnvel gæti leiðin milli Reykjavíkur og Keflavíkur orðið ófær.

Færð á vegum: http://www.vegagerdin.is/ferdaupplysingar/faerd-og-vedur/

Veðurstofan: www.vedur.is

Almannavarnir: www.almannavarnir.is