Hoppa yfir valmynd
26.2.2016
Creative take off

Creative take off

Íslensk hönnun verður sett í öndvegi á Keflavíkurflugvelli í tilefni Hönnunar-Mars en Isavia og Hönnunarmiðstöð Íslands bjóða upprennandi hönnuðum að selja hönnun sína á besta stað á verslunarsvæðinu 4.-22. mars. Okkur finnst að frábærar hugmyndir eigi að fá byr undir báða vængi og að þeir sem fara um flugstöðina á leið sinni til annarra landa geti gripið með sér íslenska hágæðahönnun og borið hróður listamannanna út fyrir landsteinana.
 
Hönnunarmiðstöð Íslands fer yfir umsóknir og tekur ákvörðun um valið. Tilkynnt verður um niðurstöður 1. mars næstkomandi. Við valið verður lögð áhersla á fjölbreytt vöruúrval og að gefa ferðamönnum tækifæri til að kynna sér gróskuna í íslenskri hönnun.
 
Isavia hvetur hönnuði til að bregðast skjótt við þessu kalli og sækja um þátttöku í CREATIVE TAKE OFF fyrir 1.mars.
 
Sækja um:
http://www.kefairport.is/um-felagid/creative-take-off/