Hoppa yfir valmynd
11.1.2024
Drónabann yfir Grindavík

Drónabann yfir Grindavík

Vegna jarðskjálftavirkni í og við Grindavík og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug á svæði sem nær í fjögurra kílómetra radius umhverfis hnit 6350N 2226W.

Bannið gildir til kl. 18:00 þann 26. janúar 2024.

Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið [email protected] eða í síma 831-1644.