Hoppa yfir valmynd
8.7.2014
easyJet flýgur til London, Genfar og Belfast allt árið

easyJet flýgur til London, Genfar og Belfast allt árið

easyJet mun á næstunni stórauka umsvif sín á Keflavíkurflugvelli. Flugfélagið hyggst hefja beint áætlunarflug frá Íslandi til Gatwick-flugvallar í London, Genfar í Sviss og Belfast á Norður-Írlandi allt árið um kring. Sala flugmiða til allra áfangastaðanna hófst kl.6 í morgun á vefsíðu félagsins, easyJet.com, en flugið til Gatwick og Genfar hefst í lok október og til Belfast í desember. Nýju flugleiðirnar þrjár verða starfræktar allt árið um kring.

Alls verða áfangastaðir easyJet í föstu áætlunarflugi frá Íslandi þá orðnir átta talsins, en fyrir flýgur félagið til London Luton, Bristol, Manchester, Edinborgar í Skotlandi og Basel í Sviss. Umsvif easyJet hafa stóraukist frá því að félagið hóf að fljúga héðan árið 2012, en þegar Belfast flugið hefst í desember verða mánaðarlegar brottfarir félagsins 100 talsins og frá og með febrúar á næsta ári 110 í hverjum mánuði þegar tíðni til London Luton og Manchester eykst. Um ríflega tvöföldun er að ræða því nú í júlí eru þær 52 talsins.

Gatwick - flugvöllur sem Íslendingar á leið til London þekkja

Íslendingar sem ferðast til Lundúna þekkja flestir Gatwick-flugvöll. Hann er næststærsti flugvöllur Bretlands og um hann fara u.þ.b. 40 milljón farþegar á ári hverju. Lundúnarflug easyJet hefur hingað til einskorðast við London-Luton og mun því verða haldið áfram en flugið til Gatwick bætist við og í febrúar næstkomandi verður flogið samtals 10 sinnum í viku til þessara tveggja flugvalla í London.  

Belfast er höfuðborg Norður-Írlands og um er að ræða nýjan áfangastað frá Íslandi. Frá Belfast-flugvelli flýgur easyJet til 26 borga á Bretlandseyjum og meginlands Evrópu.

Genf er höfuðborg Sviss og er vel þekkt viðskiptaborg og ferðamannastaður. Flugleiðin bætist við það flug sem þegar er í boði á milli Genfar og Keflavíkur en þetta verður í fyrsta sinn sem boðið er upp á heilsársflug þangað frá Íslandi.

Fyrsta flugið til Gatwick-flugvallar í London verður farið 27. október næstkomandi og verður flogið þangað þrisvar í viku. Sala farmiða til allra þriggja áfangastaðanna hófst í morgun á heimasíðu félagsins, www.easyJet.com.

easyJet áætlar að flytja á bilinu þrjú til fjögur hundruð þúsund farþega á flugleiðum sínum til og frá Íslandi á næsta ári og búist er við að ferðamenn sem koma hingað til lands með easyJet muni skila fjórum milljörðum króna í þjóðarbúið árið 2015.

 

Ali Gayward, framkvæmdastjóri easyJet í Bretlandi:

Þetta er stór áfangi í bættri þjónustu easyJet við Íslendinga að bjóða þeim upp á hagstætt beint flug til Gatwick-flugvallar. Bæði fyrir viðskiptaferðir og fólk á leið í frí. Flugvöllurinn er jafnframt góður valkostur fyrir íslenska ferðamenn á leið til annarra áfangastaða í Evrópu þar sem umsvif okkar á Gatwick eru mjög mikil, en alls fljúgum við til 108 borga í beinu flugi þaðan.

Flugleiðin á milli Keflavíkur og London Luton hefur verið afar vinsæl, ekki síst á meðal ferðamanna á leið til Íslands. Við hyggjumst halda því flugi áfram. Samtals verðum við því með 10 flug á viku á milli Keflavíkur og London. Belfast er svo alveg nýr valkostur fyrir Íslendinga og ég hef trú á að þeirri flugleið verði vel tekið. Flug okkar til Genfar verður svo fyrsta heilsársflugið þangað frá Íslandi.

Við viljum vinna með Íslendingum að því hvernig megi best stýra ferðamannastrauminum hingað til lands. Við höfum skoðað bakgrunn þeirra sem ferðast með easyJet til Íslands og við sjáum að landið höfðar einna helst til ferðamanna með rúm fjárráð, enda er Ísland ekki ódýr áfangastaður.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia:

Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir íslenska ferðaþjónustu og fyrir uppbyggingu flugvallarins. Við höfum unnið markvisst með ferðaþjónustuaðlium að því að kynna Ísland sem vetraráfangastað.  Þessi nýja flugleið easyJet er enn ein stoðin undir vetrarferðamennsku á Íslandi og mun hjálpa til við að dreifa ferðamönnum utan háannatímans. Sömuleiðis eru þetta jákvæðar fréttir varðandi nýtingu flugstöðvarinnar en flug easyJet eru yfirleitt að koma og fara rétt utan við þann tíma dags sem mestar annir eru á flugvellinum. Þá skapar þetta meiri möguleika fyrir ferðalög Íslendinga. Mér skilst að easyJet sé að stíla meira inn á viðskiptaferðir með því að bjóða flug á Gatwick í Lundúnum og sömuleiðis til Genfar.