Hoppa yfir valmynd
14.12.2023
easyJet hefur sölu á flugi til Akureyrar næsta vetur

easyJet hefur sölu á flugi til Akureyrar næsta vetur

Breska flugfélagið easyJet hefur hafið sölu á flugferðum til Akureyrarflugvallar frá London Gatwick í október og nóvember á næsta ári. Flugfélagið hóf beint flug til Norðurlands í október síðastliðnum og er með ferðir á áætlun tvisvar í viku út mars, á þriðjudögum og laugardögum. Stefnt er að flugi sama tímabil næsta vetur og mun félagið setja fleiri mánuði í sölu þegar nær dregur. 

Fram kemur í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands að viðtökurnar á fluginu hafa verið góðar, bæði á Bretlandi og á Íslandi og afar ánægjulegt að nú sé hægt að bóka beint flug til og frá London með svo löngum fyrirvara. Sætanýting hefur verið samkvæmt áætlunum og lendingar á Akureyrarflugvelli gengið mjög vel.

„Það er mikið ánægjuefni að easyJet hafi nú þegar hafið sölu á flugferðum milli Akureyrarflugvallar og London Gatwick fyrir næsta vetur,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. „Það verður afskaplega gaman að taka á móti easyJet og öðrum flugfélögum á Akureyrarflugvelli á næsta ári. Viðbyggingin við flugstöðina verður tilbúin í júlí og við enn betur í stakk búin til að þjónusta flugfélögin og farþega þeirra.“

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir að áframhaldandi flug easyJet næsta vetur til Akureyrarflugvallar frá Gatwick í London sé mikið fagnaðarefni. „Bókanir á fluginu sem hófst í lok október hafa farið vel af stað og nýting verið í takt við áætlanir. Flug beint norður býður nýjan valkost í flugi til Íslands og skapar tækifæri til uppbyggingar á vetrarferðaþjónustu. Þessi þróun er í takti við áherslur um dreifingu ferðamanna um landið og ánægjulegt að margra ára samstarf um uppbyggingu millilandaflugs sé að skila þeim árangri að easyJet leggi nú af stað með áætlun næsta vetrar.“