Hoppa yfir valmynd
26.5.2016
Ekkert áætlunarflug um Keflavíkurflugvöll frá 02-07 vegna yfirvinnubanns

Ekkert áætlunarflug um Keflavíkurflugvöll frá 02-07 vegna yfirvinnubanns

Vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra verður þjónusta á Keflavíkurflugvelli annan daginn í röð takmörkuð við sjúkra- og neyðarflug frá 02:00 í nótt til 07:00 í fyrramálið. Ástæðan er að tveir flugumferðarstjórar sem áttu að vera á vaktinni í nótt eru veikir og vegna yfirvinnubanns fást ekki flugumferðarstjórar til afleysinga. Á meðan á takmörkuninni stendur eru 16 flugvélar áætlaðar til komu frá Norður-Ameríku og átta til brottfarar til Evrópu.
 
Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) og Samtök Atvinnulífsins (SA) fyrir hönd Isavia standa nú í kjaraviðræðum og hefur þeim verið vísað til ríkissáttasemjara. Viðræður hafa staðið yfir frá því í nóvember en síðasti fundur var haldinn 20. maí síðastliðinn. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til næsta fundar í viðræðunum. 
 
Yfirvinnubann FÍF hefur staðið yfir frá 6. apríl.
 
Farþegar sem eiga bókað flug á þessum tíma eru hvattir til að fylgjast með flugáætlunum á www.kefairport.is eða vef síns flugfélags.