Hoppa yfir valmynd
6.11.2019
Elko með hagkvæmasta tilboðið í aðstöðu til reksturs raftækjaverslana á Keflavíkurflugvelli

Elko með hagkvæmasta tilboðið í aðstöðu til reksturs raftækjaverslana á Keflavíkurflugvelli

Elko átti hagkvæmasta tilboðið í útboði á aðstöðu undir rekstur tveggja raftækjaverslana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Útboðið hófst í júní síðastliðnum. Reksturinn var boðinn út þar sem fyrri samningur við Elko er að renna út.

Óskað var eftir reynslumiklum aðila sem hefði yfir að ráða úrvali vörumerkja. Gerð var sú krafa að viðkomandi hefði rekið að lágmarki tvær raftækjaverslanir samhliða síðastliðin þrjú ár og hefði yfir að ráða  úrvali vörumerkja og vöruframboði sem samanstæði að minnsta kosti af farsímum, spjaldtölvum, snjallúrum, myndavélum, heyrnartólum, litlum hátölurum og heimilistækjum.

Við mat á tilboðum var m.a. horft til vöruúrvals, verðstefnu, þjónustu, mannauðsmála, hönnunar og upplifunar í verslun auk fjárhagslegra þátta. 7 aðilar sóttu útboðsgögn eftir að opnað var fyrir aðgang að þeim 18. júní síðastliðinn. Tvö fyrirtæki  sendu gögn til þátttöku, báðir uppfylltu hæfiskröfur og var þeim boðið til viðræðna. Í valferlinu var notast við viðræður og í kjölfar þeirra  skiluðu þátttakendur inn lokatilboðum. Valnefnd mat tilboðin til stiga en hún var skipuð tveimur fulltrúum frá Isavia og tveimur óháðum ráðgjöfum frá Deloitte og Capacent.

Gerður verður þriggja ára samningur við Elko um aðstöðu til reksturs tveggja raftækjaverslana í norðurbyggingu flugstöðvarinnar, önnur er ætluð farþegum á leið úr landi en hin er ætluð komufarþegum. Áætlað upphaf samningstíma er í janúar 2020.

Isavia vill þakka þeim fyrirtækjum sem tóku þátt í útboðinu fyrir sýndan áhuga.