Hoppa yfir valmynd
21.11.2013
Farangursflokkunarkerfi Keflavíkurflugvallar stækkað og endurbætt

Farangursflokkunarkerfi Keflavíkurflugvallar stækkað og endurbætt

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, og Søren Knudsen frá Crisplant A/S handsala samninginn.

 

Isavia og danska fyrirtækið Crisplant A/S undirrituðu í dag, 21. nóvember, samning um stækkun og endurbætur á farangursflokkunarkerfi Keflavíkurflugvallar sem lokið verður við í byrjun sumars.

Verksamningurinn  felur í sér tvöföldun á afkastagetu farangursflokkunarkerfisins sem eftir breytinguna getur flokkað alls 86 farangurstöskur á mínútu. Farangursflokkun fer fram með tölvustýrðu færibandakerfi sem flokkar og flytur farangur að vögnum fyrir hverja flugvél og er hann jafnframt skimaður um leið í leit að ólöglegum varningi vegna flugverndar. Mikil umferðaraukning hefur orðið á Keflavíkurflugvelli að undanförnu og hefur búnaðurinn verið starfræktur með hámarksafköstum undanfarin tvö ár. Með endurbótunum fæst aukið öryggi og jafnvægi í rekstrinum og er stýribúnaður endurnýjaður til samræmis við nýjustu þjónustukröfur.

Smíði og uppsetning kerfisins var boðin út á vegum Ríkiskaupa fyrr á þessu ári en Crisplant A/S er umsvifamikill framleiðandi flokkunarkerfa fyrir flugstöðvar, vöruhús og dreifingarmiðstöðvar. Þrjú tilboð bárust og er heildarupphæð samningsins um 645 milljónir króna.

Samningurinn var undirritaður í farangursflokkunarsalnum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Frá vinstri: Maren Lind Másdóttir, verkefnastjóri farangurskerfa, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, Søren Knudsen og Karsten Pedersen frá danska fyrirtækinu Crisplant A/S.