Hoppa yfir valmynd
7.3.2016
Farþegar ánægðir með Keflavíkurflugvöll

Farþegar ánægðir með Keflavíkurflugvöll

Keflavíkurflugvöllur lendir í þriðja sæti í alþjóðlegri þjónustukönnun.

Keflavíkurflugvöllur er í hópi bestu flugvalla Evrópu árið 2015 samkvæmt þjónustukönnun sem gerð er á vegum alþjóðasamtaka flugvalla, ACI. Könnunin er viðamikil og gerð á öllum helstu flugvöllum heims. Fimm flugvellir voru jafnir að stigum í þriðja sætinu en ásamt Keflavíkurflugvelli voru Kaupmannahafnarflugvöllur, Heathrow flugvöllur í London, flugvöllurinn í Porto og Vínarflugvöllur í þriðja sæti. Í fyrsta sæti voru þrír flugvellir jafnir, Sheremetyevo flugvöllur í Moskvu, Pulkovo flugvöllur í Pétursborg og Sochi flugvöllur.

Í könnuninni eru farþegar spurðir um sína upplifun af þjónustu flugvallarins og gefa einkunn í fjölmörgum flokkum. Könnunin nær yfir alla þætti ferðarinnar um flugvöllinn, hvort sem er innritun, öryggisleit, þjónusta í verslunum og veitingastöðum, vegabréfaeftirlit, tollskoðun og aðra þjónustu.

Keflavíkurflugvöllur hefur náð góðum árangri í þjónustukönnunum ACI undanfarin ár og þrisvar sinnum endað í fyrsta sæti, árið 2009, 2011 og 2014. Þá var flugvöllurinn valinn á heiðurslista samtakanna árið 2014 fyrir samfelldan góðan árangur og situr þar á meðal 32 flugvalla í heiminum.

Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia: „Árið 2015 var stærsta ár í sögu flugvallarins og háannatímar sumarsins voru á stundum erfiðir fyrir farþega og starfsfólk vegna mikils farþegafjölda og yfirstandandi framkvæmda. Starfsfólk Isavia og rekstraraðila í flugstöðinni stóð sig frábærlega í að takast á við þá áskorun og það sést glögglega í því að þrátt fyrir að komið hafi upp tímabil þar sem raðir voru lengri en við viljum sjá og þrengslin stundum mikil þá höldum við okkur í toppsæti yfir flugvelli Evrópu. Ljóst er samkvæmt nýjustu farþegaspá okkar að farþegum um flugvöllinn mun enn fjölga og nú gerum við ráð fyrir 37% fleiri farþegum í ár en fóru um flugvöllinn í fyrra. Við höfum undirbúið okkur vel undir sumarið bæði með miklum framkvæmdum og fjölgun starfsfólks og við viljum auðvitað halda okkur áfram í toppnum.“

„Árangur flugvallarins í þjónustukönnun ACI ber vott um fagmennsku ykkar, staðfestu og árangur í því að bjóða viðskiptavinum upp á hágæðaþjónustu. Flugvöllurinn er til sóma fyrir okkar fag og ég þakka starfsfólki ykkar fyrir þennan stórkostlega árangur,“ segir Angela Gittens, framkvæmdarstjóri ACI World, í yfirlýsingu sem hún sendi Isavia í tilefni af niðurstöðunum.