Hoppa yfir valmynd
23.12.2019
Farþegaspá fyrir árið 2020

Farþegaspá fyrir árið 2020

Spá Isavia um fjölda farþega sem áætlað er að fari um Keflavíkurflugvöll árið 2020 var gefin út í dag.

Samkvæmt farþegaspánni er gert ráð fyrir að farþegar sem fara um Keflavíkurflugvöll 2020 verði tæplega 6,7 milljónir og fækki því um 7,6% frá því sem var árið 2019. Heildarfjöldi komufararfarþega verði tæpar 2,6 milljónir sem er 1,4% samdráttur frá í fyrra.

Annað árið í röð fækkar skiptifarþegum mest. Þeir fara úr rétt rúmum 2 milljónum í rúmlega 1,5 milljón eða niður um 24,3 prósent.

Komu- og brottfararfarþegum fækkar aðeins um 1,2 prósent

Þegar horft er til ársins 2019 er rétt að hafa í huga að fyrstu þrjá mánuðina var WOW air starfandi – en félagið féll í lok marsmánaðar. Að frátöldum farþegum Wow air fækkar farþegum í heild um 1,9%. Komu og brottfararfarþegum fjölgar um 3,3% en skiptifarþegum fækkar um 16,2%

„Farþegaspá Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll er unnin í náinni samvinnu við notendur flugvallarins og við erum að gera ráð fyrir fækkun í heildarfjölda farþega sem fara mun um Keflavíkurflugvöll á næsta ári,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Því má ekki gleyma að stærsta hluta fækkunarinnar má rekja til þess að WOW air var starfandi fyrstu þrjá mánuði ársins á síðasta ári. Það jákvæða er að þessi spá gerir ráð fyrir að að komu- og brottfararfarþegum fækki einungis um rétt rúmt eitt prósent á komandi ári.“

Íslenskum ferðalöngum fækkar nokkuð

Í tengslum við farþegaspá hefur Isavia á síðustu árum einnig gefið út ferðamannaspá. Það er nokkur óvissa varðandi ferðamannaspánna, en fyrstu niðurstöður benda þó til að íslenskum ferðalöngum fækki um á bilinu 7 til 8 prósent frá 2019 en á móti gæti fjöldi erlendra ferðamanna staðið nokkurn veginn í stað milli ára. Þetta er þó ekki endanleg niðurstaða.

„Ef þetta mat gengur eftir fækkar erlendum ferðamönnum ekki á Íslandi á nýju ári,“ segir Sveinbjörn. „Mikilvægt er að gæta að því að viðhalda þeim flugtengingum við umheiminn sem við höfum og fjölga þeim til framtíðar, enda er bein tenging milli þeirra og hagvaxtar í landinu. Það skilar sér til okkar allra.“

Farþegaspárfundur haldinn á nýju ári

Farþegaspáin byggir á upplýsingum úr kerfum Isavia og samtali við þau flugfélög sem eru notendur flugvallarins, til viðbótar við þær fréttir og fregnir sem almennt hafa borist af flugfélögum. Hún er þannig unnin úr samanteknum upplýsingum um öll þau flugfélög sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli eða hafa hafið sölu á ferðum til og frá flugvellinum.

Áformað er að boða til opins fundar um farþegaspánna á nýju ári og þar verður fjallað nánar um horfurnar fyrir árið 2020, útlitið í fjölda ferðamanna og þær áskoranir sem bíða á næstu mánuðum. Einnig verður þar fjallað um þau tækifæri sem eru til staðar í rekstri Keflavíkurflugvallar í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi og mikilvægi flugtenginga fyrir íslensk efnahagslíf og þjóðfélagið í heild sinni.