Hoppa yfir valmynd
7.6.2019
FARÞEGUM FÆKKAR MIKIÐ MILLI ÁRA

FARÞEGUM FÆKKAR MIKIÐ MILLI ÁRA

  • Það er mat Isavia að fjöldi erlendra farþega til Íslands í ár verði 1.927 þúsund. Þeim fækki því um 388 þúsund milli ára.
  • Skiptifarþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll fækkar um 43 prósent frá í fyrra, úr tæpum 3,9 milljónum í tæpar 2,2 milljónir. Þar munar tæplega 1,7 milljónum farþega. Mestu munar um brotthvarf WOW air.
  • Uppfærðar tölur um farþegafjölda í júní og til loka desember benda til að heildarfjöldi farþega sem fari um Keflavíkurflugvöll árið 2019 verði um 7,3 milljónir.
  • Útlit er fyrir að íslenskir farþegar um Keflavíkurflugvöll verði um 631 þúsund árið 2019 sem er 37 þúsund færri en í fyrra.

Farþegaspá Isavia 2019 fyrir Keflavíkurflugvöll er unnin út frá upplýsingum um afgreiðslutíma sem flugfélögin hafa tryggt sér. Farþegaspáin byggir á upplýsingum úr kerfum Isavia, til viðbótar við þær fréttir sem borist hafa af flugfélögum. Spáin er að því leyti unnin með öðrum hætti en áður. Isavia telur hinsvegar að fyrir liggi nægar upplýsingar til að gefa út uppfærða farþegaspá og svara þannig ákalli markaðarins. Breytist forsendur verður þessi spá uppfærð.

Fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll hefur verið afar hröð á síðustu árum og hefur það í sumum tilvikum kallað á uppfærða farþegaspá þegar liðið hefur á árið – hvort sem farþegum hefur fjölgað eða fækkað. Í lok mars hætti WOW air, einn stærsti viðskiptavinur Isavia á Keflavíkurflugvelli, starfsemi. Þá var ljóst að gera yrði breytingar á farþegaspá fyrir árið 2019. Því til viðbótar hefur verið nokkur óvissa vegna stöðu Boeing MAX flugvéla Icelandair.

Í spá fyrir árið 2019, sem birt var í janúar, var gert ráð fyrir að 8,9 milljón farþegar færu um Keflavíkurflugvöll í ár.

Hér má sjá uppfærða farþegaspá Isavia – þ.e. rauntölur fyrir janúar til og með maí og síðan spá fyrir júní til og með desember. Þar er gert ráð fyrir að heildarfjöldi farþega sem fer um Keflavíkurflugvöll verði 7,3 milljónir sem er fækkun um tæpar 2,5 milljónir frá því sem var í fyrra. Áætlaður heildarfjöldi í ár er nærri hálfri milljón meiri en árið 2016.

Í spá Isavia frá í janúar var gert ráð fyrir því að 2,26 milljónir erlendra farþega kæmu til Íslands. Það var fækkun um 2% frá því í fyrra. Það er mat Isavia, að erlendir farþegar til landsins í ár verði 1927 þúsund. Það er fækkun um 333 þúsund manns frá fyrri spá og 388 þúsund manns frá því sem raunin varð í fyrra. Spáin gerir því ráð fyrir um 9% fleiri erlendum ferðamönnum en árið 2016.

Íslenskum farþegum fækkar um 5,5%, úr rúmlega 668 þúsund í rúmlega 631 þúsund.

 

Hér má sjá uppfærða farþegaspá fyrir 2019 og til samanburðar farþegaspá 2019 sem gefin var út í lok janúar.

 

Sumarið á Keflavíkurflugvelli

Þó svo að ferðamönnum sem fari um Keflavíkurflugvöll í ár fækki frá því sem var í fyrra viljum við hjá Isavia áfram hvetja farþega til að mæta tímanlega í flugstöðina. Það er vegna þess að álagstímar eru enn til staðar í starfsemi flugfélaga á flugvellinum og flugferðir eru því oft á sama eða svipuðum tíma. Við mælum með því að farþegar komi til innritunar 2-2,5 klukkustundum fyrir brottför. Við hvetjum farþega til að vera vel undirbúnir fyrir öryggisleit á flugvellinum og nýta sér sjálfsinnritunarstöðvar ef slíkt er í boði fyrir viðkomandi flug til að allt gangi vel fyrir sig á flugvellinum. Allar upplýsingar til að undirbúa komuna í flugstöðina má finna á www.kefairport.is