Hoppa yfir valmynd
28.2.2018
Fjárfestingarbanki Evrópu lánar til uppbyggingar á Keflavíkurflugvelli

Fjárfestingarbanki Evrópu lánar til uppbyggingar á Keflavíkurflugvelli

Isavia hefur tryggt sér 12,5 milljarða króna (100 milljóna evra) lán frá Fjárfestingarbanki Evrópu (EIB). Fjármagnið verður nýtt til endurnýjunar á núverandi mannvirkjum og til afkastaaukningar á Keflavíkurflugvelli til þess að mæta auknum fjölda farþega. Samningurinn sem undirritaður var í dag uppfyllir lánsfjárþörf Isavia fyrir árið 2018.
 
„Það er ánægjulegt að sjá Fjárfestingarbanka Evrópu á meðal lánveitenda Isavia og við gerum okkur miklar vonir um áframhaldandi farsælt samstarf við bankann,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia. „Framundan er mikil uppbygging á Keflavíkurflugvelli og stuðningur og skilningur lánveitenda skiptir því sköpum fyrir Isavia.“
 
Verkefnið mun auka afkastagetu og bæta þjónustustig inni í flugstöðinni, bæði á brottfararsvæði og á almennu svæði sem í dag anna ekki núverandi farþegafjölda á háannatímum. Fjármagnið verður einnig nýtt til stækkunar á suðurbyggingu flugstöðvarinnar, endurnýjunar á farangursflokkunarkerfi, endurbóta á flugbrautum og lagningu nýrra akbrauta og flýtiafreina, sem og í aðrar tengdar fjárfestingar.
 
„Leiðin til Íslands liggur í gegnum Keflavík og reiknað er með því að farþegum muni halda áfram að fjölga og verði um rúmar 10 milljónir á árinu 2018,“ segir Andrew McDowell, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá bankanum. „Fjárfestingarbanki Evrópu hefur lánað til íslenskra verkefna frá árinu 1995 og með þessum samningi nær bankinn þeim áfanga að hafa lánað einn milljarð evra til íslenskra verkefna, en af því erum við mjög stolt.“
 
Lánssamningurinn var undirritaður á skrifstofu sendinefndar Evrópusambandsins í Reykjavík, en Evrópski fjárfestingarbankinn er í eigu allra aðildarríkja ESB.