Hoppa yfir valmynd
11.6.2021
Fjöldi fólks á fyrstu sýningu á Einangrun

Fjöldi fólks á fyrstu sýningu á Einangrun

Fjölmargt fólk var á fyrstu sýningu á samskotsverkinu Einangrun á Reykjavíkurflugvelli í vikunni. Þetta var fyrsta sýning af sjö á fjórum innanlandsflugvöllum landsins en sýningarnar eru hluti af Listahátíð í Reykjavík. Næst verður sýnt á Egilsstaðaflugvelli 11. júní, Akureyrarflugvelli degi síðar og að lokum á Ísafjarðarflugvelli 13. júní. Frumsýning verksins hefur tafist um átta mánuði vegna Covid-19 faraldursins.

Einangrun er verk úr smiðju Leikhópsins Lakehouse þar sem raðað er saman ljóðum, örsögum og stuttum leikþáttum. Ellefu höfundar hvaðanæva af landinu lögðu til efnivið og úr varð 30 mínútna verk er birtist okkur í óvenjulegu umhverfi – á flugvöllum í fjórum landshlutum - í flutningi Guðmundar Inga Þorvaldssonar leikara og tónlistarmanns.

Leikhópurinn Lakehouse hefur á undanförnum árum vakið verðskuldaða athygli fyrir sýningar sínar Rejúníon og Í samhengi við stjörnurnar. Hópurinn sækist eftir því að veita fjölbreyttum röddum hljómgrunn og kallaði eftir efni frá skáldum í öllum landshlutum við undirbúning sýningarinnar.

Lakehouse vill með þessu verki heiðra íslenska trúbadorinn, sögumanninn eða shamaninn sem glæðir samverustundir þorpsbúanna lífi með tilfinningaþrungnum frásögnum sínum, ádeilu, háði og kímni.

Dagskrá:

10. júní: Reykjavíkurflugvöllur kl. 17:00

11. júní: Egilsstaðaflugvöllur kl. 15:15 og kl. 18:45

12. júní: Akureyrarflugvöllur kl. 13:00 og kl. 17:00

13. júní: Ísafjarðarflugvöllur kl. 10:20 og kl. 18:00

Einangrun er samskotsverk eftirtaldra höfunda:

Anna Sigríður Ólafsdóttir, Ísafjörður
Ásgeir Hvítaskáld, Egilsstaðir
Ásta Hafberg, Hörgársveit
Bára Örk Melsted, Hólmavík
Halla Mía Ólafsdóttir, Ísafjörður
Hallgrímur Hróðmarsson, Hveragerði
Harpa Rún Kristjánsdóttir, Hólar
Kristín Rut Kristjánsdóttir, Landsveit
Stefanía Hallbjörnsdóttir, Akureyri
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, Húsavík
Vala Hauksdóttir, Eyjafjöll