Hoppa yfir valmynd
22.6.2021
Fleiri en 100 brottfarir á viku frá Keflavíkurflugvelli

Fleiri en 100 brottfarir á viku frá Keflavíkurflugvelli

Icelandair nær þeim áfanga í þessari viku að vera með yfir 100 brottfarir frá Keflavíkurflugvelli. Það markar ákveðin tímamót því þetta er í fyrsta sinn frá því um miðjan mars 2020 sem félagið er með yfir 100 brottfarir á einni viku. Vikuna 9.-15. mars 2020 tóku ferðatakmarkanir gildi vegna COVID-19 faraldursins, fyrst í Bandaríkjunum og stuttu síðar í Evrópu.

Alþjóða- og innanlandsflug hefur tekið við sér samhliða því sem bólusetningum miðar fram og létt er á ferðatakmörkunum. Í þessari viku flýgur Icelandair 106 áætlunarferðir í millilandaflugi og yfir 70 ferðir innanlands, auk þess sem félagið heldur uppi fraktflugi og leiguflugi. Í síðustu viku hóf félagið flug til Billund og Genf í Evrópu á nýjan leik og til Minneapolis í Bandaríkjunum. Í þessari viku hefur Icelandair einnig flug til Helsinki á ný. Félagið flýgur nú í beinu flugi til 23 áfangastaða, fimmtán í Evrópu og átta í Norður-Ameríku.