Hoppa yfir valmynd
26.10.2015
Flugslysaæfing haldin á Hornafjarðarflugvelli

Flugslysaæfing haldin á Hornafjarðarflugvelli

Flugslysaæfing fór fram á Hornafjarðarflugvelli síðastliðinn laugardag, 24. október. Á æfingunni voru æfð viðbrögð við ímynduðu flugslysi flugvélar með 20 manns innanborðs. Fjöldi ráðgjafa auk heimamanna tók þátt í æfingunni sem heppnaðist með ágætum. Að æfingu lokinni eru viðbrögð rýnd og að lokum er gerð skýrsla um hvað var vel gert og hvað má betur fara.

Flugslysaæfingar eru almannavarnaæfingar og eru jafnan með stærstu hópslysaæfingum sem haldnar eru ár hvert og mikilvægar heildarviðbragðskerfi Íslands hvort sem um flugslys eða önnur hópslys er að ræða. Isavia heldur utan um skipulag æfinganna en mikill fjöldi annarra viðbragðsaðila kemur að þeim. Frá árinu 1996 hefur Isavia haldið yfir 40 flugslysaæfingar.

Æfðar eru björgunar- og slökkviaðgerðir, greining og aðhlynning slasaðra auk umönnunar óslasaðra og aðstandenda. Auk þess er áhersla lögð á samhæfingu vegna flutnings slasaðra, boðunarkerfi, stjórn, fjarskipti, rannsókn á vettvangi og fleira. Um tvær til fjórar æfingar eru haldnar ár hvert, en stór flugslysaæfing er haldin á hverjum flugvelli á fjögurra ára fresti. Æfingarnar byggja á flugslysaáætlun sem gerð hefur verið fyrir hvern flugvöll.

Fjöldi viðbragðsaðila taka þátt í æfingunum, meðal annarra Isavia, almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, slökkvilið, lögregla, heilbrigðisstofnanir, sjúkraflutningar, björgunarsveitir, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Neyðarlínan og prestar.