Hoppa yfir valmynd
3.6.2013

Flugverndarnámskeið á Reykjavíkurflugvelli 6. júní

Næsta flugverndarnámskeið verður haldið í Fræðslusetri Isavia á Reykjavíkurflugvelli
Fimmtudaginn 6. júní frá kl. 09:00 – 10:30.

Allir þeir sem þurfa heimild og þeir sem þurfa að endurnýja aðgangsheimildir sínar til að fara inn á flugvallarsvæði Reykjavíkurflugvallar þurfa að sækja námskeið í flugvernd, þar sem m.a. er farið í grundvallaratriði flugverndar, aðgengi og umgengni um flugvöllinn og akstur á flugvallarsvæðinu.

Öllum þeim sem þurfa að endurnýja aðgangsheimildir sinnar (aðgangskort og akstursheimildir) er skylt að sækja endurmenntun vegna flugverndar.

Það er ábyrgð þeirra sem hafa aðgang að flugvellinum að óska eftir endurnýjun aðgangsheimilda sinna. Starfsaðilar sækja um aðgang og endurnýjun aðgangs á þar til gerð eyðublöð sem finna má á heimasíðu Isavia.

Þátttakendur þurfa að skrá sig með því að senda e-mail á [email protected].

Námskeiðin taka hvert um sig u.þ.b. 1½ klst.
Flugverndarnámskeið kostnaður er 4.000- per. einstakling.