Hoppa yfir valmynd
23.6.2010

Flugverndarnámskeið verður haldið miðvikudaginn 30.júní

Næsta flugverndarnámskeið verður haldið í Fræðslusetri Isavia miðvikudaginn 30. júní  frá kl 10.00 til kl. 11:30. (Fræðslusetrið er við hliðina á flugturninum í Reykjavík).

Allir þeir sem þurfa heimild og þeir sem þurfa að endurnýja aðgangsheimildir sínar til að fara inn á flugvallarsvæði Reykjavíkurflugvallar þurfa að sækja námskeið í flugvernd, þar sem m.a. er farið í grundvallaratriði flugverndar, aðgengi og umgengni um flugvöllinn og akstur á flugvallarsvæðinu.
Allir þeir sem þurfa að endurnýja aðgangsheimildir sinnar (aðgangskort og akstursheimildir) er skylt að sækja endurmenntun vegna flugverndar.

Það er ábyrgð þeirra sem hafa aðgang að flugvellinum að óska eftir endurnýjun aðgangsheimilda sinna. Starfsaðilar sækja um aðgang og endurnýjun aðgangs á þar til gerð eyðublöð sem finna má á heimasíðu Isavia.

Námskeiðin taka hvert um sig u.þ.b. 1½ klst.

Flugverndarnámskeið kostnaður er 2.400.- per. einstakling."