Hoppa yfir valmynd
14.12.2015
Formleg tilnefning um einkaleyfi til flugumferðarþjónustu

Formleg tilnefning um einkaleyfi til flugumferðarþjónustu

Síðastliðinn föstudag afhenti Samgöngustofa Isavia formlega tilnefningu um einkaleyfi til flugumferðarþjónustu í íslenska loftrýminu, auk efra loftrýmis Grænlands sem íslenska ríkið hefur gert um samning við það danska. Um er að ræða eitt stærsta flugstjórnarsvæði í heimi. Með þessu er formfest þjónusta Isavia og uppfylltar skuldbindingar íslenska ríkisins á þessum vettvangi, en um þær gilda strangar alþjóðlegar reglur og kvaðir.

Isavia sinnir flugleiðsöguþjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu og lögum samkvæmt hefur Samgöngustofa daglegt eftirlit með starfseminni. Samvinna Isavia, Samgöngustofu og íslenska ríkisins í þessum málaflokki er í þágu flugöryggis í íslenska flugstjórnarsvæðinu og þar með um 30 milljóna flugfarþega sem ferðast í þeim rúmlega 130.000 flugvélum sem fara þar um á hverju ári. Fjölmörg störf tengjast verkefni flugleiðsöguþjónustu eða um 300 á Íslandi og eru langflest þeirra hjá Isavia. Störfin eru fjölbreytt en nefna má flugumferðastjóra, flugfjarskiptafólk, fluggagnafræðinga, flugradíómenn, veðurfræðinga, verkfræðinga, tölvunarfræðinga og ýmsa tæknimenn, auk stoðþjónustu í fjármálum og rekstri.

Tilnefningin er liður í því að uppfylla alþjóðlega samninga um samevrópska loftrýmið. Bætist hún við þjónustusamning sem er í gildi milli innanríkisráðuneytisins og Isavia sem nær m.a. til verkefna á sviði flugleiðsöguþjónustu, bæði á alþjóðlegu flugsvæði og í innanlandsloftrými.