Hoppa yfir valmynd
28.1.2021
Framkvæmt fyrir tæpa 12 milljarða króna - 6 verkefni boðin út

Framkvæmt fyrir tæpa 12 milljarða króna - 6 verkefni boðin út

Isavia áformar að bjóða út sex framkvæmdaverkefni á Keflavíkurflugvelli á þessu ári. Framkvæmdakostnaður er tæpir 12 milljarðar króna og er áætlað að framkvæmdunum verði lokið í ár eða á næsta ári. Verkefnin voru kynnt á útboðsþingi Samtaka iðnaðarins sem var í beinu streymi á netinu nýverið. Isavia var þá á meðal þeirra 11 fyrirtækja og stofnana sem kynntu þar framkvæmdir sem áformað er að setja í útboð í ár.

Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildarstjóri verkfræði- og framkvæmdadeildar Isavia á Keflavíkurflugvelli, fór yfir verkefnin og kynnti þau í erindi sínu á Útboðsþinginu. Þau verkefni sem hér um ræðir eru hluti af þróunar- og uppbyggingaráætlun Keflavíkurflugvallar og hluti af framtíðarsýn fyrir flugvöllinn. Þeim er ætlað að auka skilvirkni á vellinum og bæta samkeppnishæfni hans.

Viðbyggingar 

Í ár er áformað að bjóða út verkefni tengd tveimur viðbyggingum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Áætlað er að framkvæmdum ljúki árið 2022. Annars vegar er það viðbygging á einni hæð með kjallara sem bætir afgreiðslu á komufarangri í flugstöðinni. Töluverðar breytingar verða gerðar á innra skipulagi komusvæðis og er hluti af verkefninu uppsetning á nýjum kerfum tengdum farangursafgreiðslu.

Hins vegar er það viðbygging á tveimur hæðum án kjallara við Suðurbyggingu flugstöðvarinnar. Þar verður aðstaða farþegar á brottfararhliðum í austurenda suðurbyggingarinnar bætt. Hluti af verkefninu er ný landgöngubrú.

Flugbrautarkerfi 

Á þessu ári verða boðnar út framkvæmdir við tvær akbrautir á Keflavíkurflugvelli og á framkvæmdum að ljúka á þessu ári. Annars vegar er það ný 1200 metra akbraut fyrir flugvélar sem tengir saman flughlað flugstöðvarinnar við flugbraut og hins vegar viðhald og endurnýjun ljósabúnaðar á einni af stóru akbrautum vallarins. Með nýju brautinni er öryggi og afkastageta flugbrautarkerfisins aukin.

Vegaframkvæmdir 

Áformað er að bjóða út tvo nýja vegi á flugvallarsvæðinu og ljúka framkvæmdum við það á þessu ári. Annar vegurinn er 1500 metra langur þjónustuvegur sem liggur að framkvæmdasvæði en mun til framtíðar nýtast fyrir flutning á vörum til og frá flugvallarsvæði og flugstöðinni. Hinn er 500 metra hringtenging sem tengir núverandi umferðarkerfi í forgarði flugstöðvar við núverandi vegstæði Reykjanesbrautar. Það eykur umferðaröryggi til muna og léttir á flöskuhálsum við flugstöðina.

Hér á vef Samtaka iðnaðarins má finna kynningu Jóns Kolbeins og upptöku af erindum fundargesta. Upptakan með Jóni Kolbeini hefst á 1:02:00