Hoppa yfir valmynd
24.5.2014
Fyrsta flug Icelandair til Genfar

Fyrsta flug Icelandair til Genfar

Áætlunarflug Icelandair til Genfar í Sviss hófst í morgun, 24. maí. Flogið verður til og frá borginni tvisvar í viku til 23.september.

Genf er gamalgróin söguleg borg og mikil miðstöð alþjóðastofnanna enda er stór hluti um 1,1 milljón íbúa af erlendu bergi brotinn. Hún stendur við Genfarvatn vestast í Sviss við landamæri Frakklands.

Áhöfn fyrsta flugsins. Frá vinstri: Ómar Magnússon, Sigurvin Einarsson, Sara Reginsdóttir, Inga Hugborg Ómarsdóttir, Andri Kristinn Ágústsson og Kristín Sigurðardóttir,

Fyrstu farþegar sem stigu um borð, Callagy Ross og Tori Scarzello, klipptu á borðann með áhöfninni.