Hoppa yfir valmynd
2.7.2021
Fyrsta flug United Airlines milli Keflavíkurflugvallar og Chicago

Fyrsta flug United Airlines milli Keflavíkurflugvallar og Chicago

Bandaríska flugfélagið United Airlines hóf í dag í fyrsta sinn beint flug milli Keflavíkurflugvallar og Chicago. Bandarískt flugfélag hefur ekki áður boðið upp á beint flug á þessari leið. Fyrstu ferð félagsins milli Keflavíkurflugvallar og Chicago O´Hare alþjóðaflugvallar var fagnað með vatnsboga í morgun.

Áætlun United gerir ráð fyrir að flogið verði milli Keflavíkurflugvallar og Chicago til 4. október. Til viðbótar þá flýgur félagið einnig frá Íslandi til New York/Newark. Það flug hófst 3. júní síðastliðinn og stendur til 30. október. Flogið er daglega til beggja áfangastaða.

„Það er okkur mikil ánægja að taka á móti fyrsta flugi United Airlines frá Chicago til Íslands,“ sagði Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia. „Sú ákvörðun United Airlines að bæta Chicago við sem nýjum áfangastað er skýrt merki um það hve vinsælt Ísland er og verður áfram þegar heimsfaraldrinum sleppir. Hún er einnig til marks um mikla eftirspurn eftir ferðalögum frá Bandaríkjunum til Íslands. Bandaríkin eru mikilvægur markaður fyrir okkur og United Airlines mikilsmetinn samstarfsaðili okkar.“

„Við erum spennt að hefja þessa þjónustu með beint flug, þá fyrstu sem rekin er af bandarísku flugfélagi á milli Reykjavíkur og Chicago,“ sagði Bob Schumacher, sölustjóri United. „Þessi nýja þjónusta stækkar leiðakerfi okkar í Evrópu enn frekar og með ákjósanlegri brottfarar- og komutíma býðst viðskiptavinum okkar frá Íslandi enn meira úrval ferðamöguleika og möguleikinn á að taka tengiflug frá tengistöð okkar á Chicago O'Hare til yfir 110 áfangastaða víðs vegar um Ameríku á auðveldan hátt.“