
Gert ráð fyrir metumferð um Keflavíkurflugvöll
Áætlað er að umfang flugstarfsemi á Keflavíkurflugvelli slái öll fyrri met á komandi sumri. Veruleg aukning verður í leiðakerfum flugrekenda sem aldrei hafa haft jafnmarga áfangastaði í áætlunar- og leiguflugi til og frá landinu. Alls munu 17 flugfélög halda uppi ferðum til landsins í sumar og tvö ný félög hyggjast halda uppi áætlunarflugi allt árið.