Hoppa yfir valmynd
31.8.2014
Gos í Holuhrauni hefur ekki áhrif á flugumferð

Gos í Holuhrauni hefur ekki áhrif á flugumferð

Gos í eldstöðinni í Holuhrauni norðan Vatnajökuls sem hófst á ný í morgun hefur ekki áhrif á flugumferð.

Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík hefur skilgreint svæði umhverfis eldstöðina í samræmi við upplýsingar frá Veðurstofu Íslands þar sem blindflug er ekki leyft í öryggisskyni. Svæðið nær norður undir Mývatn og einungis upp í 6.000 feta (2 km) hæð. Flugvélar voru ekki á svæðinu þegar eldgossins varð vart í morgun og það hefur engin áhrif á flugsamgöngur.