Hoppa yfir valmynd
14.9.2015
Gróðursetning að Ásbrú

Gróðursetning að Ásbrú

Síðastliðinn laugardag tók vaskur hópur starfsfólks höndum saman og setti niður tæplega 300 plöntur, víði og aspir, við leikskólann Háaleiti á svæði Ásbrúar við Keflavíkurflugvöll. Samfélagssjóður Isavia veitti styrk til kaupa á plöntum og starfsmenn buðu sig fram í gróðursetninguna. Að gróðursetningu lokinni gæddu starfsmenn, makar og börn sér á grilluðum pylsum.