Hoppa yfir valmynd
18.2.2022
Guðjón Leifsson nýr forstöðumaður hjá Isavia

Guðjón Leifsson nýr forstöðumaður hjá Isavia

Guðjón Leifsson hefur verið ráðinn forstöðumaður á Þjónustu og rekstrarsviði Isavia. Hlutverk hans verður að byggja upp faglega miðju á sviðinu fyrir rekstrargreiningar, breytingastjórnun og bestun á ferlum. Þá mun hann leiða vinnu við faglega og samræmda verkefnastjórnun ásamt því að stýra stórum þverfaglegum verkefnum.

Guðjón starfaði áður hjá Marel þar sem Digital Strategy Manager og stýrði þar fjölbreytilegum verkefnum tengdum starfrænni vegferð fyrirtækisins. Þar áður starfaði hann hjá Símanum til fjölda ára þar sem hann stýrði nýsköpun, vöru- og verkefnastýringu, og þjónustu fyrir einstaklingsmarkað, auk þess að leiða vinnu sem stuðlaði að umbreytingu á menningu, stjórnun og vinnulagi fyrirtækisins.

„Við hjá Isavia  erum að fara að vaxa á ný, eftir niðursveiflu í kjölfar faraldurs. Allt bendir til að það gerist hratt  og okkar bíði mikið og stórt verkefni að vaxa á skilvirkan hátt á næstu árum. Þar er breytingastjórnun og bestun rekstrar lykilatriði til að gera Keflavíkurflugvöll að drifkrafti velsældar á komandi árum. Þar mun reynsla og þekking Guðjóns koma sér gríðarlega vel fyrir okkur,“ segir Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri þróunar og rekstrar hjá Isavia.