Hoppa yfir valmynd
5.7.2021
Í fyrsta skipti í rúma 15 mánuði fóru yfir 10 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll á einum degi

Í fyrsta skipti í rúma 15 mánuði fóru yfir 10 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll á einum degi

Laugardaginn 3. júlí síðastliðinn fóru 10.580 manns um Keflavíkurflugvöll. Svo margir farþegar hafa ekki farið um völlinn á einum degi frá því 13. mars 2020, eða fyrir rúmum 15 mánuðum. Daginn eftir, eða þann 14. mars 2020, settu bandarísk yfirvöld á ferðabann til Bandaríkjanna vegna Covid-19 og fækkaði farþegum um Keflavíkurflugvöll mikið næstu vikuna á eftir. Frá og með 23. mars var mjög lítil umferð um völlinn og tengistöðina milli Evrópu og Norður-Ameríku lokaðist. Bannið er enn í gildi og óvíst hvenær það verður afnumið. Sú breyting hefur þó orðið á að fullbólusettir Bandaríkjamenn eða þeir sem hafa fengið Covid-19-smit geta komið til Íslands án takmarkana á landamærum.

Að viðbættri þeirri fjölgun ferðamanna sem orðið hefur á síðustu vikum er  ljóst að minnst 20 flugfélag verður með ferðir til og frá Keflavíkurflugvelli í sumar. Nú síðast bættust flugfélagið Play í hópinn. Þá hefur Icelandair fjölgað brottförum í hverri viku og bandaríska flugfélagið United Airlines hóf flug til Chicago í síðustu viku. Það er nýr áfangastaður fyrir United frá Keflavíkurflugvelli.

„Það eru bjartari tímar framundan í rekstri flugvalla og flugfélaga eftir erfiða tíma vegna heimsfaraldursins,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia. „Það er ljóst að tengistöðin hjá Icelandair er að fara í gang að nýju. Þá sýna vel heppnað hlutafjárútboð Play og nýr kjölfestufjárfestir hjá Icelandair að markaðurinn hefur mikla trú á flugi til Íslands og landinu sem áfangastað nú þegar bólusetningar lina tök heimsfaraldursins.“

Guðmundur Daði segir að þó sé mikilvægt að hafa í huga að næstu dagar geti orðið mjög annasamir og afgreiðsla hæg í flugstöðinni á meðan gildandi sóttvarnarráðstöfunum heilbrigðisyfirvalda er fylgt gagnvart komufarþegum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

„Þessu til viðbótar má nefna að það skiptir miklu máli fyrir þróunina á komandi vetri hvernig tekst til í flugrekstri og þjónustu við ferðamenn á Íslandi í júlí og ágúst,“ segir Guðmundur Daði. „Við hjá Isavia vinnum mikið með flugfélögum við  að tryggja aukið framboð af flugi yfir vetrartímann. Áhuginn á Íslandi er mikill og með hverju nýju félagi og hverjum nýjum áfangastað þá fjölgar þeim sem vilja sækja okkur heim og tækifærum fyrir íslensk viðskiptalíf til að sækja á nýja markaði fjölgar enn.“