
Icelandair hefur flug til Birmingham
Icelandair hóf á fimmtudaginn sl. reglulegt áætlunarflug til Birmingham í Englandi. Birmingham er fimmti áfangastaður Icelandair í Bretlandi og bætist í hóp London Heathrow, London Gatwick, Manchester og Glasgow. Flogið er tvisvar í viku, á fimmtudögum og mánudögum.