Hoppa yfir valmynd
20.10.2014
Inspired by Iceland birtir myndband um leitina að hugrakkasta ferðamanninum

Inspired by Iceland birtir myndband um leitina að hugrakkasta ferðamanninum

Nýr áfangi Inspired by Iceland herferðarinnar sem Isavia meðal annarra ferðaþjónustufyrirtækja tekur þátt í formlega kynnt í síðustu viku með birtingu á nýju myndbandi á vef Youtumbe. Um er að ræða nýjan áfanga vetrarherferðar markaðsverkefnisins Ísland – allt árið. Gerð myndbandsins hefur þegar vakið mikla athygli en 100 þúsund aðdáendur Íslands settu saman ferðaáætlun fyrir einn heppinn ferðamann sem valinn úr hópi um 4500 umsækjenda síðastliðinn vetur. Ferðamaðurinn heppni er Jennifer Asmundson, matreiðslumeistari frá Bandaríkjunum, en hún er af íslensku bergi brotin.
 
Myndbandið nefnist á ensku „The Ultimate Secret Tour“ og lýsir ferðalagi Jennifer um Ísland og þeim leyndardómum sem hún uppgötvaði hérlendis. Myndbandið er hluti af „Share the Secret“ herferð Ísland – allt árið sem upprunalega var sett af stað haustið 2013 undir formerkjum Inspired by Iceland. Herferðin byggir á því að nýta staðbundna þekkingu Íslendinga og hið glögga auga erlendra gesta til að benda á að Ísland búi yfir fjölda ýmis konar ævintýra um land allt til viðbótar við þau sem þegar eru hvað þekktust, og hafa ef til vill ekki enn komist á kortið hjá erlendum ferðamönnum.
Secret tour of Iceland