
ISAVIA EINN HELSTI BAKHJARL LJÓSANÆTUR
Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri tækni- og eignasviðs Keflavíkurflugvallar, og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, hafa undirritað samstarfssamning Isavia og Reykjanesbæjar vegna Ljósanætur. Hátíðin hefst miðvikudaginn 29. ágúst og lýkur sunnudaginn 2. september.
Ljósanótt er nú haldin í nítjánda sinn og er þetta árleg hátíð í Reykjanesbæ. Boðið er upp á tónleika, sýningar og margs konar samkomur meðan á hátíðinni stendur.
Isavia er einn af helstu bakhjörlum Ljósanætur og er stuðningur Isavia sérstaklega tengdur heimatónleikunum vinsælu sem haldnir eru ár hvert í tengslum við hátíðina. Framlög Isavia eru liður í því að styðja við metnaðarfullt starf á ýmsum sviðum samfélagsins þannig að það dafni og fái að njóta sín.