Hoppa yfir valmynd
9.5.2015
Isavia hélt umfangsmikla almannavarnaæfingu á Egilsstaðaflugvelli í dag

Isavia hélt umfangsmikla almannavarnaæfingu á Egilsstaðaflugvelli í dag

Um 200 manns tóku þátt í flugslysaæfingu sem haldin var á Egilsstaðaflugvelli í dag. Á æfingunni voru æfð viðbrögð við flugslysi innan flugvallargirðingar. Þátttakendur voru frá Isavia og öllum viðbragðsaðilum á svæðinu í kringum Egilsstaði. Æfðar voru björgunar- og slökkviaðgerðir, greining og aðhlynning slasaðra auk umönnunar óslasaðra og aðstandenda. Auk þess var áhersla lögð á samhæfingu vegna flutnings slasaðra, boðunarkerfi, stjórn, samhæfingu, fjarskipti, rannsókn á vettvangi og fleira.

Flugslysaæfingar Isavia eru almannavarnaæfingar og eru jafnan stærstu hópslysaæfingar sem haldnar eru ár hvert og mikilvægar heildarviðbragðskerfi Íslands hvort sem um flugslys eða önnur hópslys er að ræða. Frá árinu 1996 hefur Isavia haldið yfir 40 flugslysaæfingar.

Um tvær til fjórar æfingar eru haldnar ár hvert, en stór flugslysaæfing er haldin á hverjum flugvelli á fjögurra ára fresti. Æfingarnar byggja á flugslysaáætlun sem gerð hefur verið fyrir hvern flugvöll. Að æfingu lokinni eru viðbrögð rýnd og kannað hvað var gert vel og hvað mætti bæta.

Fjöldi viðbragðsaðila tóku þátt í æfingunni, meðal annarra Isavia, almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, slökkvilið, lögregla, heilbrigðisstofnanir, sjúkraflutningar, björgunarsveitir, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Neyðarlínan og prestar.