Hoppa yfir valmynd
19.10.2017
Isavia kyrrsetur flugvél Air Berlin vegna vangreiddra gjalda

Isavia kyrrsetur flugvél Air Berlin vegna vangreiddra gjalda

Isavia kyrrsetti í kvöld flugvél Air Berlin á Keflavíkurflugvelli vegna notendagjalda sem eru í vanskilum sem eru tilkomin vegna greiðslustöðvunar Air Berlin. Isavia hefur heimildir í loftferðalögum til þess að kyrrsetja loftför svo tryggja megi greiðslu vangoldinna gjalda, og hefur því úrræði verið beitt einu sinni áður á Keflavíkurflugvelli.
 
Um er að ræða vanskil á gjöldum sem stofnaðist til áður en Air Berlin fór í greiðslustöðvun. Ljóst er að framkvæmdin mun hafa áhrif á ferðir þeirra farþega sem áttu bókað flug með Air Berlin og harmar Isavia að til þessa hafi þurft að koma. Þessi aðgerð er hins vegar eina úrræðið sem félagið hefur til þess að tryggja greiðslu skuldar Air Berlin.  Starfsfólk Isavia er til taks á Keflavíkurflugvelli í nótt ef kemur til þess að aðstoða þurfi þá farþega sem verða fyrir áhrifum af þessari aðgerð. 
 
Uppfært 20. okt klukkan 11:00: Tekið skal fram að aðgerðin beinist einungis að þessari einu flugvél og á þessi aðgerð ekki að hafa áhrif á aðrar flugferðir Air Berlin næstu daga.