Hoppa yfir valmynd
30.12.2019
Isavia semur við Elko um aðstöðu undir rekstur raftækjaverslana á Keflavíkurflugvelli

Isavia semur við Elko um aðstöðu undir rekstur raftækjaverslana á Keflavíkurflugvelli

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Gestur Hjaltason, framkvæmdastjóri Elko, hafa undirritað samning við Elko um aðstöðu undir tvær raftækjaverslanir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn er til þriggja ára með möguleika á tveggja ára framlengingu, eitt ár í senn.

Elko átti hagkvæmasta tilboðið í útboði sem hófst í júní síðastliðnum. Niðurstaðan lá fyrir í byrjun nóvember. Aðstaðan var boðin út þar sem fyrri samningur við Elko er að renna út.

Óskað var eftir reynslumiklum aðila sem hefði yfir að ráða úrvali vörumerkja. Gerð var sú krafa að viðkomandi hefði rekið að lágmarki tvær raftækjaverslanir samhliða síðastliðin þrjú ár og hefði yfir að ráða  úrvali vörumerkja og vöruframboði.

Við mat á tilboðum var m.a. horft til vöruúrvals, verðstefnu, þjónustu, mannauðsmála, hönnunar og upplifunar í verslun auk fjárhagslegra þátta.

Sjö aðilar sóttu útboðsgögn. Tvö fyrirtæki sendu gögn til þátttöku, báðir aðilar uppfylltu hæfiskröfur og var þeim boðið til viðræðna. Í valferlinu var notast við viðræður og í kjölfar þeirra skiluðu þátttakendur inn lokatilboðum. Valnefnd mat tilboðin til stiga en hún var skipuð tveimur fulltrúum frá Isavia og tveimur óháðum ráðgjöfum frá Deloitte og Capacent.

Samningurinn við Elko tekur gildi í janúar 2020 og verða endurbættar verslanir Elko í brottfarar- og komusal flugstöðvarinnar opnaðar á nýju ári. Þar verður aukin áhersla lögð á stafræna viðskiptahætti og skemmtilega upplifun.

Frá vinstri: Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri hjá viðskiptadeild Keflavíkurflugvallar, Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, Gestur Hjaltason, framkvæmdastjóri Elko, og Óttar Örn Sigurbergsson, innkaupastjóri hjá Elko.