![Isavia setur upp sjö söguskilti um herminjar í Öskjuhlíð og Nauthólsvík](/media/_4/i/isavia-7839.jpg)
Isavia setur upp sjö söguskilti um herminjar í Öskjuhlíð og Nauthólsvík
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia afhjúpuðu í gær sjö glæsileg söguskilti sem sett hafa verið upp við merkar herminjar í Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Skiltin eru samstarfsverkefni Isavia og Reykjavíkurborgar en Friðþór Eydal starfsmaður Isavia vann texta og safnaði efni. Friðþór hefur ritað fjölda bóka um hersetu á Íslandi og er einn af helstu sérfræðingum landsins um þau umsvif.
Ljósmyndir á skiltunum sýna hvernig umhorfs var á svæðinu í seinni heimsstyrjöldinni og skýringartextar lýsa hlutverki mannvirkja sem eftir standa, svo sem Reykjavíkurflugvallar og tengdra minja í Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Skiltin eru mörg hver staðsett steinsnar frá fjölförnum göngustígum í Öskjuhlíð og nýtast því vel því fólki sem nýtur útivistar í Öskjuhlíð á degi hverjum. Sighvatur Halldórsson, grafískur hönnuður hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu, annaðist grafíska uppsetningu á skiltunum en undirstöðurnar eru hannaðar af Árna Tryggvasyni.
Hér má sjá myndir af skiltunum og kort af staðsetningu þeirra í Öskjuhlíð og Nauthólsvík:
![](/media/_4/s/skilti_1-1.jpg)
![](/media/_4/s/skilti_2-2.jpg)
![](/media/_4/s/skilti_3-2.jpg)
![](/media/_4/s/skilti_4-2.jpg)
![](/media/_4/s/skilti_5-1.jpg)
![](/media/_4/s/skilti_6-1.jpg)
![](/media/_4/s/skilti_7-1.jpg)