Hoppa yfir valmynd
4.6.2013
Isavia styrkir Björgunarfélag Hornafjarðar til bílakaupa

Isavia styrkir Björgunarfélag Hornafjarðar til bílakaupa

Stjórn Isavia og forstjóri ásamt fulltrúum Björgunarfélags Hornafjarðar.

Björgunarfélagi Hornafjarðar var boðið til móttöku á Hornfjarðarflugvelli 30. maí síðastliðinn, þar sem formleg afhending fór fram á 1,4 milljóna styrk sem félagið fékk úr styrktarsjóði Isavia til bílakaupa. Við tækifærið sýndi Björgunarfélagið starfsfólki Hornafjarðarflugvallar, forstjóra Isavia og stjórn bílinn og búnað hans. Bíllinn mun nýtast Björgunarfélaginu mjög vel og auka getu þess til að takast á við krefjandi verkefni.
 
Um styrktarsjóð Isavia
Styrktarsjóður Isavia var stofnaður árið 2011 með það fyrir augum að efla hópslysaviðbúnað björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að styrkja sveitir nærri áætlunarflugvöllum Isavia til kaupa á tækjum og búnaði eða til þess að efla menntun og þjálfun björgunarsveitarmanna. Úthlutun úr Styrktarsjóði Isavia fer fram árlega og nam úthlutun á nýliðnu ári 12 milljónum króna til 18 björgunarsveita. Á þessu ári hefur verið tilkynnt um ráðstöfun á átta milljónum til 23 björgunarsveita.
 
Upphaflega átti verkefnið að vera til þriggja ára en hefur nú verið framlengt um tvö ár og áherslan útvíkkuð með víðtækari skírskotun m.a. með hliðsjón af vinsælum ferðamannastöðum. Þá verður horft til þess að úthlutanir taki mið af heildstæðu mati á hópslysaviðbúnaði mismunandi svæða, sem og fjölþættu notagildi búnaðarins. Með þessu vill Isavia hjálpa björgunarsveitum að takast á við aukið álag sem fylgir auknum straumi ferðamanna til landsins.