
Isavia tekur við umsóknum í grunnnám í flugumferðarstjórn í ágúst
Isavia, Flugskóli Íslands og Flugskóli Keilis hafa gert samkomulag um að grunnámskeið fyrir nám í flugumferðarstjórn verði framvegis haldin á vegum Isavia en flugskólarnir hafa haldið slík námskeið undanfarin sex ár. Tekið verður við umsóknum í grunnnámið í ágúst 2015 og námið hefst í janúar 2016.
Isavia annast rekstur íslensku flugleiðsöguþjónustunnar og er eini starfsvettvangur flugumferðastjóra á Íslandi. Félagið og forverar þess hafa jafnan annast alla þjálfun flugumferðarstjóra en áætlað er að þjálfa þurfi að meðaltali sex nýja flugumferðarstjóra árlega næstu árin.
Áformað er að halda grunnnámskeið í flugumferðarstjórn á vegum Isavia 2016 og eiga samstarf við flugskólana um kennslu í flugtengdum greinum.
Nemar sem teknir verða inn í grunnnám í flugumferðarstjórn hjá Isavia munu ekki greiða skólagjöld.
Hæfniskröfur inn í grunnnám í flugumferðarstjórn eru meðal annars þessar:
- Viðkomandi þarf að vera a.m.k. 18 ára og hafa lokið stúdentsprófi (eða sambærilegu).
- Umsækjendur tali og riti góða íslensku og ensku.
- Umsækjendur skulu geta staðist læknisskoðun skv. reglugerð um skírteini flugumferðarstjóra.
- Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð.