Hoppa yfir valmynd
22.1.2021
Jet2.com og Jet2CityBreaks bjóða upp á flug á milli Manchester og Íslands sumarið 2022

Jet2.com og Jet2CityBreaks bjóða upp á flug á milli Manchester og Íslands sumarið 2022

Breska flugfélagið Jet2.com og Jet2CityBreaks ætla að bjóða upp á flug og borgarferðir frá Manchester á Englandi til Íslands sumarið 2022. Boðið verður upp á flugferðir milli Keflavíkurflugvallar og Manchester-flugvallar á mánudögum og fimmtudögum frá apríl til október á næsta ári.

Hægt verður að kaupa stakt flugfar með Jet2.com eða pakkaferð til Íslands með Jet2City Breaks. Þannig er veitt svar við eftirspurn Breta eftir ferðum til Íslands en einnig fá Íslendingar aðgengi að Manchester-borg og Norðvestur-Englandi. Jet2.com og Jet2CityBreaks hófu flug til Íslands árið 2019. 

„Við vitum að það er mikil eftirspurn eftir flugi og borgarferðum til Íslands frá viðskiptavinum okkar,“ segir Steve Heapy, forstjóri Jet2.com og Jet2holidays. „Það er okkur mikið gleðiefni að geta boðið upp á flug og borgarferðir fyrir sumarið 2022 frá Manchester-flugvelli. Það er mikil uppsöfnuð eftirspurn og við vitum að flug- og borgarferðir okkar verða vinsælar.“

„Við á Keflavíkurflugvelli erum einkar ánægð með að góðir samstarfsaðilar okkar hjá Jet2.com hafi ákveðið að framlengja vetraráætlun sína inn í sumarið,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar hjá Isavia. „Tilkynning um nýja flugleið frá Manchester til Íslands sumarið 2022 á þessum óvissutímum eykur trú okkar á að ferðaþjónustan muni vaxa á ný og sýnir einnig að Jet2.com hefur trú á markaðnum á Íslandi. Jet2.com hefur verið frábær samstarfsaðili undanfarin ár og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs um ókomin ár.“