Hoppa yfir valmynd
16.11.2023
Keflavíkurflugvöllur hefur íslenskuna á loft

Keflavíkurflugvöllur hefur íslenskuna á loft

Degi íslenskrar tungu er fagnað á Keflavíkurflugvelli með því að hleypa af stokkunum átakinu Höldum íslenskunni á lofti. Það miðar að því að íslenskan verði sýnilegri og mikilvægur þáttur í upplifun gesta flugvallarins. Stjórn Isavia hefur samhliða tekið ákvörðun um að íslenskan verði á undan öðrum tungumálum á öllum leiðbeiningarskiltum fyrir árslok 2024.

Á Keflavíkurflugvelli er ávallt lögð áhersla á einstaka íslenska upplifun með því að skapa tengingar við íslenska náttúru, menningu og samfélag. Aukinn sýnileiki og áhersla á íslenska tungu á flugvellinum og miðlum hans er markmið átaksins Höldum íslenskunni á lofti. Þá verða hinar ýmsu hliðar íslenskunnar strax sýnilegar í flugstöðinni. Til að mynda munu gömul íslensk heiti á erlendum borgum, eins og Nýja-Jórvík, Málmhaugar og Meilansborg, ganga í endurnýjun lífdaga með áhugaverðum hætti.

Hluti af þessu átaki verður að setja íslenskuna á undan öðrum tungumálum á öllum leiðbeiningarskiltum flugvallarins sem stjórn Isavia hefur ákveðið að gert verði fyrir árslok 2024. Skiltin eru lykilþáttur í því að hjálpa gestum að komast leiðar sinnar og tryggja gott flæði. Við breytinguna er því einnig mikilvægt að huga að gestum flugvallarins sem ekki skilja íslensku. Til að tryggja samræmi á milli skilta og koma í veg fyrir misskilning er nauðsynlegt að öllum skiltum sé breytt í einu. Breytingarnar kalla því á vandaðan undirbúning og skipulag og er sú vinna þegar hafin.

Við erum stolt af íslenskri tungu og viljum halda henni á lofti. Hún er eitt okkar helsta einkenni og það sem sameinar okkur landsmenn – hvar sem við erum stödd í heiminum. Íslenskan er líka eitt af því sem vekur áhuga annarra þjóða á Íslandi, hvort sem það eru bókmenntirnar okkar, tónlistin eða örnefni sem enginn getur borið fram nema við,“ – segir Kristján Þór Júlíusson, stjórnarformaður Isavia.

Þess vegna viljum við halda íslenskunni á lofti á Keflavíkurflugvelli, taka þátt í því að standa vörð um tungumálið og kynna það fyrir gestum okkar með áhugaverðum og upplýsandi hætti. Vinnan við herferðina og breytingarnar í flugstöðinni hefur staðið yfir í nokkurn tíma og nú liggur fyrir hvenær breytingu á leiðakerfinu okkar verður lokið þannig að íslenskan fái sinn rétta sess á sama tíma og allir okkar farþegar komist rétta leið.“