Hoppa yfir valmynd
25.3.2014
Keflavíkurflugvöllur útnefndur meðal bestu flugvalla í heimi

Keflavíkurflugvöllur útnefndur meðal bestu flugvalla í heimi

Alþjóðasamtök flugvalla – Airports Council International (ACI) hafa valið Keflavíkurflugvöll á heiðurslista yfir bestu flugvelli í heimi – ACI Director General’s Roll of Excellence.

Útnefningin nær til flugvalla sem óslitið hafa sýnt frábæran árangur í þjónustukönnunum  samtakanna meðal flugfarþega frá árinu 2008. Alls hafa 21 flugvellir hlotið þennan heiður frá árinu 2011 og í ár bætast eftirtaldir sex alþjóðaflugvellir í hópinn:

  • Keflavíkurflugvöllur
  • Dubaiflugvöllur í Sameinuð arabísku furstadæmunum
  • Kairóflugvöllur í Egyptalandi
  • Hyderabad Rajiv Gandhiflugvöllur á Indlandi
  • Taoyuanflugvöllur á Taiwan
  • Sangsterflugvöllur á Jamaíku

Framkvæmdastjóri ACI segir áherslu á að uppfylla síauknar væntingar farþega skipta sköpum í samkeppnishæfni alþjóðaflugvalla. Þessir sex flugvellir hafi ítrekað sýnt að þar ríkir mikill skilningur á áherslu farþegar á góða þjónustu og einnig á nauðsyn þess að ganga skrefi framar í að uppfylla væntingar.

„Þessi frábæri árangur er fyrst og fremst að þakka starfsfólki og samstarfsaðilum okkar á Keflavíkurflugvelli og áherslu á sífellt aukna þjónustu,“ segir Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia.